Svo leið ein vika...

Síðan ég tjékkaði mig inn í Jakarta og svaf á Changi í Singapore hef ég séð 50 íbúðir í PPhen, þvegið 8 kíló af þvotti, gengið um alla PPhen til að finna íbúð...sofið yfir mig og næstum misst af fluginu til Singapore, hitt minn elskulega Justin, farið á fína bari, borgað 13 dollara fyrir einn drykk, farið á hvítann klúbb (SupperClub) og farið í fyrsta skipti á dinner and a movie deit með Justin, við höfðum aldrei farið í bíó saman.. skoðað ChinaTown, Little India og listasafn og ráfað um Singapore. Núna erum við komin í litlu íbúðina mína og erum búin að sjá 5 íbúðir í dag.. þetta gegnur allt í lagi, við skulum finna eina á næstu dögum.

Og núna þarf ég að þjóta í vinnuna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

finnst nú bara magnað hvernig þið farið að því að skoða svona margar íbúðir en ekki finna neitt sem ykkur líst á :P

ég sendi samt baráttustrauma, kytran sem þú ert í núna er nú svolítið smá hihihi

spíra (IP-tala skráð) 27.4.2009 kl. 14:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband