Barnarán úr pagóðu

Þetta er alveg hræðilegt.

Við hjá Who Will vorum búin að lofa að taka við 2 börnum (stelpa, 6 ára og strákur, 5 ára) sem búa með móður sinni í pagóðu ásamt nunnum. Móðirin er ekki nunna, hún vinnur í fataverksmiðju en getur ekki leitað til neins annars. Á daginn þegar móðirin er að vinna er enginn sem sér um börnin. Jane þekkir tiltölulega vel til í þessari pagóðu, hún á vinkonu sem er dótturdóttir einnar nunnunar.

Í gærkvöld fékk Jane símhringingu frá vinkonu sinni.

Það er búið að ræna börnunum! Ég giska helst á að það hafi einhver heyrt frá því að einhver frá Who Will myndi koma að sækja þau farið og sagst vera frá Who Will og tekið þau. Það var víst einhver kona sem tók börnin. Móðirin er að sjálfsögðu móðursjúk og örvæntingafull, það er ekkert sem við getum gert nema að bíða og vona að börnunum verði skilað.

Ef ekki, þá get ég ekki einu sinni ímyndað mér hvað verður gert við þau. Seld í þrælkun, vændi, myrt... eflaust allt.


mbl.is „Slúðurblöðin rústuðu næstum lífi mínu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég kannast við óprúttnu þjónustustúlkurnar. Mínar voru voða góðar en tóku samt fullt af ´minjagripum´ þegar þær fóru. Aðallega föt og skartgripi frá mér. Ég skildi heldur aldrei afhverju þið voruð með þrifakonur...

Sara Kristín Finnbogadóttir (IP-tala skráð) 10.3.2009 kl. 21:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband