Atvinnu...

...leysi mínu var fagnað með að fara með mig á hóruhús. Svona er þetta að þekkja eiginlega bara stráka og eina vinkona mín sem er eftir í bænum þurfti að fara á einhvera listasýningaropnun.
Ein hóran gaf mér rós, þeim tókst ekki að draga mig upp á barinn til að dansa, en hins vegar vann ég þrjár í pool. Þetta var gott kvöld, og ég sem ætlaði bara að panta heimsendingu og lesa bókina mína.

Já The Advisor hefur hætt störfum.

Núna er ég lady of leisure, kampavín í hádeginu í morgunmat, spa og verslunarleiðangrar á kredit kort meðleigjandans... hann samþykkti 10.000 dollara eyðslu á morgun, mig vantar kjól fyrir fjáröflunina fyrir Who Will og kampavín á veitningastöðum er ekkert ódýrt, og ég þarf að panta Manolo Blahnik skó á netinu og fá þá í gegnum DHL... haha.. nei ég verð áfram í skítugum gallabuxum með mold upp á rass og slitnum stuttermabol sofandi á gólfinu á NACA.

ahh... samt svekkjandi, ég var búin að skrifa alveg fullt af greinum og svo fæ ég bara ekkert fyrir þær, því þær verða ekki gefnar út. Öll þessi vinna til lítils.

Núna er ég bara sjálfboðaliði. Kannski ekkert "bara" við það. En núna hef ég bara tvær vinnur. Fyrir tveim mánuðum var ég með fjórar.


Susadei bong.

Það hafa verið smá erfiðleikar á NACA upp á síðkastið. Systkinin Rotna, Suomsoup, Rothnak voru send í burtu frá okkur. Rotna stal síma af ferðamanni sem kom í heimsókn hann sagðist hafa fundið hann á gólfinu og spilað leik í símanum og gleymt að skila honum, síminn var í lokuðum vasa í tösku ferðamannsins, Suomsoup stal 35 dollurum af einni ömmuni sem býr með krökkunum og Rothnak stal 10 dollurum af Srey Phounm (ein af eldri stelpunum). Mikið uppnám hefur verið útaf þessu, als konar fundir verið haldnir, og núna er mikið passað upp á að ég skilji ekki símann minn eða myndavélina eftir hvar sem er eins og ég hef gert síðast liðna mánuði og ef ég gleymi að loka töskunni minni kemur Phan (sú sem rekur NACA), Chamrouen, Vy eða Srey Vouch og láta mig fara í gegnum allt og hjálpa mér svo með rennilásinn.
Raquel, sem vinnur fyrir spænska NGO-ið sem styrkir NACA kennir Reach um þetta af því að hann er administrator-inn á NACA. Þetta er náttúrulega ekkert honum að kenna. Raquel er frekar furðuleg, krakkarnir eru veikir, allt Reach að kenna, einhver dettur og rífur buxurnar sínar þannig að það þarf að kaupa nýjar buxur allt Reach að kenna. Hún sakaði mig líka um að vinna á NACA á röngum/gruggum forsendum! Eins og ég ætli að búa til barnaher, eða stela peningum!!
Núna eru aðeins 24 krakkar eftir á NACA.
Samt alltaf jafn mikið að gera þar, sérstaklega núna þar sem krakkarnir eru í skólafríi frá almennings skólanum. EAC school (góður ensku skóli í PP, ástralskur kennari styrkir 5 barnana til að fara í, þau tóku öll inntökupróf, hún valdi ekki 5 uppáhlads) er hins vegar ekki á þeim buxunum að fara í frí. Svo að það er aldrei róleg stund á NACA þessa dagana, nema þegar þau fá sér blund. Þau hafa verið dugleg að horfa á Disney myndir, það brjótast alltaf út mikil fagnaðarlæti þegar ég kem með nýja myndir. Í miklu uppáhaldi er Fríða og Dýrið (líklega af því að það er mín uppáhalds mynd), þar á eftir er Öskubuska og Finding Nemo. Dvergarnir í Mjallhvíti þóttu líka ansi skondnir. Ég leyfi nú ekki sjónvarpsgláp á hverjum degi. En það er búin að vera rigning og leiðindi þannig að það er ekki hægt að fara út í fótbolta eða hakkí sak með badminton fjöður. Þannig að eftir hádegismat og enskutíma, áður en við leggjum okkur er stundum sett diskur í tækið, eða á eftir að við borðum kvöldmat. Það er voða gott að liggja undir teppi á bambusmottum á skítugu gólfinu að horfa á prinsessu og hetju myndir í regninu með 10 börn í fanginu.

Næstu helgi ætla ég að reyna að fara með þau í Phnom Penh Water Park. Vinir mínir og meðleigjandans hafa boðist til að koma með. Gott að safna slatta af fólki, því það er ekki auðvelt að vera ein með þau og fylgjast með 24 ósyndum börnum í vatnsleikjagarði!

Annars eru sum þeirra yngri farin að kalla mig Mama Erna, oftast er ég kölluð sister, Sou Savang (eigandinn) skammar þau reyndar ef þau gera það í kennslutíma, þá á að kalla mig Miss Erna eða Teacher, mér er alveg sama, á meðan þau fylgjast með.
Tika (ein af þeim elstu) segir mér alskonar sögur á khmer, ég skil svona helminginn af því sem hún segir, og þegar ég svara henni á khmer flissa allir alveg rosalega og endurtaka orðin sem ég segji, þeim finnst þetta alveg kostulegt. Nema þegar ég segji snjíp snjabp, uppi verður fótur og fit þegar ég þruma tomtom/diktikt dá rjín daódaóþ
Meðleigjandinn heldur að hann kunni meira en ég í khmer (hann fór til einkakennara) en ég hef betri framburð. Um daginn vorum við í tuktuk að þræta um hvernig við ættum að segja já. Það er nefninlega ekki eins fyrir karlmenn og konur. Ég segji djaah, en hann segir baah, en nei er eins fyrir bæði kynin, ohdei. Grey keyrarinn vissi ekkert hvað var í gangi, okkur fannst þetta að sjálfsögðu óstjórnlega fyndið.
Annars er Khmer ansi skemmtileg tungumál. Mjög mikið hægt að mismæla sig, eins og meðleigjandinn sagði vinsamlegast brjóst í staðinn fyrir afsakið í marga mánuði. Skildi ekkert í þessu flissi sem hann fékk en ekki ég við sömu orð. Það er líka hægt að segja viltu stunda kynlíf í staðinn fyrir skál! Ég hef blessunarlega ekki boðið neinum í viltar bólfarir.

Best ég fari í bólið með John Irving.


Svalirnar mínar..

Í nokkra daga héldum við að einhver hefði verið að reyna að brjótast inn í íbúðina okkar. Það voru nokkurskonar skóför utan á svölunum og furðuleg drulla í kringum blómapottana. En svo datt okkur í hug að krakkar sem eiga foreldra sem vinna að sundlauga-gerðinni hefðu setið á svölunum að borða ávexti þar sem það voru stór fræ útum allt, ásamt þessari drullu.
Svo datt okkur í hug apar, því krakkarnir ættu að vita betur en að klifra á svalir í bygginguni þar sem leigusalin er víst tík (hef aldrei hitt hana en mér er sagt það) og eigandi byggingarinnar er forrík, meðleigjandinn þurfti einhverntíman að tala við hana en það var ekki hægt af því að hún var á fundi með Hun Sen, og það hefur verið frekar funky lykt á svölunum í c.a. 2 vikur Meðleigjandinn elskar apa og fannst það svo lítið spennandi að hafa apa á svölunum.

Við erum búin að komast að því hvað það er á svölunum sem er að borða ávexti, kúka og pissa. Það var ekki húsgesturinn... heldur leðurblökur. Alltaf hressandi að hafa fljúgandi rottur í kringum sig. Það kom okkur á óvart að þetta séu leðurblökur því þær ávaxta steinarnir og fræinn sem eru útum allt eru jafn stór og ferskjusteinar.

Þar hafiði það, ég er upp að öklum í leðurblökukúk og hlandi!


Síðasta teitið.

Síðasta Einhverstaðarannarstaðar teitið mitt er yfirstaðið. Það var frekar fríkí þegar leið næstum því yfir mig, tók tvær vatnsflöskur og hertöku á viftu til að jafna mig, hefði ég hætt mér út fyrir staðinn til að fá tuktuk heim hefði verið ráðist á mig af tuktukstjórum. Svo það var betra að henda einhverjum s-expata úr sófanum og setjast niður.
Mér var bannað að fara í stuttbuxum, sem borgaði sig svo sannarlega fyrir mig af því að ég fór í kjól, og ég var með myndavél og 2 síma á mér þannig að þrátt fyrir als konar hótanir endaði ég ekki í lauginni. Það var stuð að eilífu í teitinu, ótrúlegt hvað það komu margir, ég gat ekki snúið mér við án þess að vera kysst og föðmuð.

Það voru mikil fagnaðarlæti klukkan 2:30 í dag. Við sugnum Ding dong the bitch is gone, og gengum bara á gullu hellunum á gangstéttinni fyrir utan húsið. Hún þakkaði ekki einu sinni fyrir sig! Og..hún setti hundaeyru á allar bækurnar mínar!, ein er ólesanleg afþví að hún bara tók hana á ströndina án þess að spurja! OG...ég fann þurkað blóm, sem var inn í dagbókinni minni, sem var ofan í skúffu á náttborðinu mínu, á náttborðinu í gestaherberginu þar sem hún svaf! Og afþví að ég er það rugluð að stundum þegar ég er að skrifa rennur það bara út í ensku...þá hefur hún skilið svona helminginn af því sem ég hef skrifað, verst að ég skrifaði ekkert um hana í bókina. Það hefði verið kostulegt :)

Ding dong the bitch is gone! :D

Ég er víst að fara í golf á morgun, ætli meðleigjandinn eigi matching golf föt handa okkur?


Ekkert smá hallærisleg.

Var vakin í morgun fyrir klukkan 6. Þar með byrjaði hallæri dagsins. Meðlegjandinn henti í mig stuttbuxum og bol, ég var fegin að það var ekki grásleppa. Svo dró hann mig í ræktina...Við vorum í eins stuttbuxum, eins litum bolum og eins sokkum. Hann átti ekki aukaskó handa mér. Eftir morgunmat og sturtu fór ég í ljóst pils... og þá fór að rigna, rykugar götur+rigning=drulla.

Eins gott að Elsewhere verði með nóg af kókósrjóma og ananas í kvöld...Þið þekkið lagið, :)
Það á að halda upp á afmælið mitt aftur í kvöld. Ég á að mæta með kórónuna, og ég er nokkuð viss um að mér verði hent ofaní laugina. Ég er nokkuð viss um að fá STD við það... Swimming-pool Transmitted Disease...

Ég ætla að vera í hallærislegum fötum af meðleigjandanum...Fyrst ég byrjaði daginn þannig er ekki best að ég endi hann þannig?


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband