Orðlaus

Ég er orðlaus. Mig langar til að vita hvernig og hverjum var mútað fyrir að fá þessar niðurstöður. Keflavík meðal bestu flugstöðva í heimi..?! Mér finnst Leifsstöð alveg hryllilega leiðinlegur flugvöllur. Yfirborðskenndur og óþægilegur. Það væri líka gaman að vita við hvaða velli var verið að miða. Einhvern bush völl í fátækri borg einhverstaðar í austur Evrópu? Ég trúi þessari rannsókn ekki baun. ég á bara ekki aukatekið orð yfir þessari vitleysu. Þjónustulund?! jáh.. það þykja mér fréttir. Nei! þetta er snemmbúið fyrsta apríl gabb!! hah ég sé sko í gegnum þetta.

Ég var líka orðlaus þegar sturtan hætti að virka áðan. Leigan fyrir íbúðina sem við búum í er himin há! $1300 á mánuð og vatn og rafmang ofan á það (Takk ANZ) ... Ætti þá ekki vatnið að virka? Einstaklega gaman að vera með sjampó í augunum þegar sturtan fór hiksta, náði þó mestu úr hárinu, en það er ennþá smá sjampó í því.

Annars er ég mállaus í þokkabót, ekki var nóg að fá ljóta matareitrun, þannig að ég hélt engu niðri nema í 30 mín í mesta lagi, en þá er ég komin með ljóta hálsbólgu :( Justin og loftkælingin hans...

Hreingerningarkonurnar hafa gert mig enn einu sinni orðlausa... þær reyndu að kenna mér um að eyðileggja skyrtu af Justin, þær reyndu líka neita því að hafa eyðilaggt stuttbuxurnar mínar. Alveg sama hversu oft ég sýni þeim að það eigi ekki að nota klór á fötin okkar nota þær klór. Þær flissa bara, ég segji "aht mhin ni ai khnyom hai song saat, minh ni aht lahona" þær segja "tjchah miss" Ég spyr hvort þær skilji hvað ég er að segja, þær segjast skilja, og endurtaka það sem ég segji... næsta sem ég sé þær gera er að hella klór í þvottavélina! Ekki veit ég hvaðan þessi klór kemur, því ekki datt mér í hug að kaupa hann. Ég hef hins vegar oft hent honum, en alltaf er til klór.

Svo er ég líka tallaus, því ég hef engann síma þessa dagana.
Ætli þær, hreingerningarkonurnar, hafi ekki líka eyðilagt hleðslutækið mitt, eða símann minn... því ég get ekki hlaðið hann eða neitt. Hann virkaði fínt í fyrradag. Svo kom ég heim í gær eftir vinnu og hann virkaði ekki. Og í morgun þegar þær komu að þrífa voru þær heldur betur kindalegar...


mbl.is Keflavík meðal bestu flugstöðva í heimi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já það er notarlegt að hafa kindur að stússa við yfir vetrartímann. Geta fóðrað þær og klórað.

Pabbi kallinn (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 11:49

2 identicon

hvað ertu annars að þvælast með hreingerningarkonur? og ég held ég hafi ekki séð orðið "orðlaus" eða svo margar útgáfur af því í einni grein :D

en ljótt er að heyra að þú sért svona veik. farðu nú vel með þig ljúflingur!

spíra (IP-tala skráð) 12.2.2009 kl. 12:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband