Kominn tími á upp-stefnumót

Langt síðan ég skrifaði síðast.. og það er fullt búið að gerast.

Ég er eiginlega alveg búin að ná mér eftir aðgerðina. Verð samt stundum óskiljanlega mikið þreytt, en það er þegar ég er búin að vera að allann daginn án þess að stoppa neitt. Örið mitt er tiltölulega lítið og mjög snyrtilegt, það eru allir voðalega hissa yfir því. Ég var mjg heppin að fá heila viku aukalega í hvíld því The Giving Tree gaf öllum starfsmönnum alla vikuna í frí fyrir Pchum Ben.

Við Justin fórum til Kampot og Keb yfir Pchum Ben hátíðina. Við áttum mjög góða og rómantíska daga að keyra um sveitina, taka myndir og borða krabba. Við sáum eitt magnaðasta sólsetur sem við höfum séð í Kambódíu, það var eins og atom bomba og alskonar litir sem eru venjulega ekki hér. Kampot er voðalega sætur bær, mjög fáir sem voru þar því allir héldu að vegurinn væri ónýtur. Hann var reyndar mjög holóttur og í slæmu ástandi, sem var mjög hressandi fyrir auma bumbuna mína. Ég vildi að við hefðum haft meiri tíma í Kampot, næst bara.
Við hittum 5 íslendinga í Kampot. Justin hefur sagt öllum að við hittum hálft Ísland í Kampot, hinn helmingurinn hafi þurft að vera eftir á Íslandi að mótmæla... Allavega þau sem við hittum voru Ásgeir sem var líka í Vogaskóla, hann var þar ásamt 2 strákum (Dóri og Elli) og 2 stelpum (Helga og Helga?) sem hann hafði hitt í Nha Trang held ég.. Nema hvað... Dóri og Geiri (unnusti hennar Lenu minnar) eru bestu vinir og við höfðum heyrt als konar sögur af hvort öðru.

Á miðvikudaginn byrjaði ég að kenna ballet. Þær eru svo krúttulegar stelpurnar sem ég kenni. Við vorum rétt búnar að syngja góðar góðar góðar tær, ljótar ljótar ljótar tær og standa aðeins í fyrstu stöðu þegar ég var spurð "Hvenær dönsum við alvöru ballet". Frekar erfitt að svara því, ætli ég verði ekki að hafa stopp dans næst. En við gerðum plié og tondué í fyrstu og annari stöðu, gerðum smá hopp og hneygðum okkur. Þeim fannst það víst voðalega gaman, foreldrar búnir að koma til mín ferlega sáttir og stelpurnar senda mér fingurkossa.

Ég held að það sé alveg öruggt að ég sé í alvöru kærustupari. Við fórum með málverk og ljósmyndirnar hans Justin í innrömmun og erum búin að vera að þræta hvar allt á að fara svo að heimilið okkar sé sem fallegast síðustu daga.
Ekki stoppar fjörið þar heldur héldum við fyrsta matarboðið okkar á laugardaginn. Við buðum Ádísi, Ben og dætrum í mat. Justin keypti mud-crabs og blue-swimmer crabs á markaðnum. Mud-crabs-arnir voru svo ferlega ferskir að þeir klifruðu útum allt í eldhúsinu okkar og við settum þá í kapphlaup eftir gólfinu áður en við settum þá inni í frysti til að svæfa þá. Nema krabbarnir neituðu að sofna. og einn var svo ferlega sprækur að hann kleip mig. Mér er ennþá illt!! Þess utan að vera með kramdann putta var mjög gaman hjá okkur.

Ætli ég verði ekki að hætta að fresta því að læra.. mér finnst æðislegt að vinna 3 verkefni í einu.

Já og ég er Erna dreki núna... Ég var ráðin sem erindreki eða Special Agent hjá The Oriental Travel ferðaskrifstofunni (www.theorientaltravel.com). Spennandi!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Lífseigir krabbar maður!

Btw: Brjálað að lesa af ykkur þarna meginn. Hvernig er staðan á þér? Ætlaru ekkert að senda á mig heimilisfangið þitt?

Gummi Kári (IP-tala skráð) 28.9.2009 kl. 11:04

2 identicon

Gott að þú ert að jafna þig krúttan mín :*

Ég varð nú bara ógeðslega abbó þegar ég frétti að þið hefðuð hist, fannst þetta frekar ósanngjarnt að þau fengju að hitta þig en ekki ég hehehe ;)

Knús og kossar

lena :)

Lena :) (IP-tala skráð) 28.9.2009 kl. 15:33

3 identicon

jiminn! lífið þitt er alltaf jafn áhugavert :D

og spennandi að elda ferska krabba híhí

hvað gerir annars special agent? ekki ertu svona jakkafataklædd með svört sólgleraugu og lítinn transmitter í eyranu? (lélegur djókur ég veit:)

spíra (IP-tala skráð) 28.9.2009 kl. 16:35

4 identicon

Hæ hó Erna ofurkona :D

En gaman að heyra að þú sért farin að kenna ballet og ernudrekast!

Ég vona að þér sé alveg batnað í horfna botnlanganum þínum núna,

ég er ennþá með minn... eins gott að hann fari ekki að vera með stæla.

Við erum hæstánægð hérna í Nanjing,

erum að sjálfsögðu að plotta að koma í heimsóknina margumræddu til Kambó.

Kannski við förum á sama tíma og Anna Hjö? Ekki hafa áhyggjur af gistiplássi,

ég hef líka heyrt það að í samanburði við Kambó sé Kína mjög dýrt, hehe..

Annars er maður farin að venjast verðlaginu hérna og ég stóð sjálfa mig að því að finnast 700 ísl.kr. ógeðslega dýrt fyrir Mojito.

Fullt af ást til þín,

Anna (og Davíð og Helga ef þau vissu að ég væri að skrifa þér)

Knús!

Þorgerður Anna (IP-tala skráð) 1.10.2009 kl. 17:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband